Sumarhótel

Sumarhótel Hússtjórnarskólans er í skólabyggingu sem byggð var 1929. Skólinn tók til starfa 1930 og alla tíð hefur verið rekið hótel yfir sumartímann samhliða skólastarfinu. Þó svo að gistingin sé í sjálfu sér barn síns tíma býður húsið upp á andrúmsloft gamla tímans og rómaða stemmingu.

Þetta reisulega hús hefur fóstrað margar góðar húsmæður um allt land. Enn er skólinn í fullum gangi og sækir frekar í sig veðrið frekar en hitt þar sem hann hefur ásamt hefðbundum heimilisfræðum farið að kenna nemendum á listnámsbrautum.
 

Verðskrá Sumarhótels Hússtjórnarskólans 2012:

 Tveggjamanna herbergi með baði:
 24.725 kr
 Einsmanns herbergi með baði:
 18.975 kr
 Tveggjamanna herbergi með baði frammi á gangi:
 16.675 kr
 Einsmanns herbergi með baði frammi á gangi:
 12.350 kr
 Aukarúm   5.750 kr

 Öll verð innihalda morgunverð.