Book now
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
Tapas

Eru spænskir smáréttir sem njóta gríðarlegra vinsælda um allan heim. Nafn réttanna “tapa” merkir lok og er ástæða nafnsins sú að upphaflega var tapas sneið af hráskinku eða brauði sem gefin var með drykkjum. Voru sneiðarnar látnar ofan á glös bargesta til að varna því að flugur kæmust í drykkinn. Síðan fóru bareigendur að veita því athygli, að áfengið fór betur í þá sem borðuðu tapasið, viðskiptavinurinn varð síður ölvaður og gat innbyrgt meira. Tapas var því í upp-hafi einfaldur matur sem þróaðist með tímanum í það að vera smáréttir eins og við þekkjum í dag.

Tapas getur í raun og veru verið hvaða matur sem er en réttirnir mega ekki vera það stórir að þeir trufli samræður og þeir verða að vera þannig að hægt sé að borða þá með sem minnstri fyrirhöfn.

Þú velur á borðið! - Við gefum þér upp verðið! - Einfaldara getur það ekki verið!

  • Alioli kartöflur
  • Bravas kartöflur
  • Spænsk tortilla
  • Kjúklingakrókettur
  • Hvítar baunir í vinaigrette-sósu
  • Hvítlauksrækjur
  • Saltfisksklattar
  • Steiktar ólífur
  • Djúpsteiktur smokkfiskur (Calamares)
  • Steiktar möndlur
  • Marineraðir sjávarréttir
  • Gufusoðin kræklingur í eldpaprikusmjöri
  • Grillaðar risarækjur í kryddjurtasmjöri og sítrónu
  • Hráskinka með kantalópu
  • Makríll í hvítlauksólífuolíu
  • Ansjósusmjör
  • Spænskt sveitabrauð
  • Empanadas - fylltir hálfmánar
  • Chorizo - spænsk pylsa